26.01.2012 13:42:30 / skokkhopurhamars
Aðalfundur Skokkhóps Hamars verður haldinn þann 2.febrúar nk. (fimmtudag)
Fundarstaður er Kjörís
Klukkan 20.00
Venjuleg aðalfundarstörf.
Eftir aðalfund er ætlunin að ræða félagsmálin hjá okkur og hvað er framundan í æfingum, uppákomum og keppnis-hlaupum!
Stjórnin og foringinn!
»
20.01.2012 12:26:09 / skokkhopurhamars
Venjuleg æfing verður kl 10:00 á morgun fyrir morgun hressa, þeir sem eru ekki hressir meiga líka endilega koma og hressa sig við

"Morgun stund gefur gull í mund"
Kveðja Lísa skvísa sem mun ekki mæta og Pétur.
»
17.01.2012 21:25:42 / skokkhopurhamars

Góð hlaupaæfing í kvöld og á annan tuginn mættir. Geir var eitthvað að fllýta sér og sást lítið nema í byrjun. Gaman að sjá að nokkrir tóku alvarlega leiðbeinigum sjúkraþjálfara frá því á laugardaginn og gerðu góðar æfingar eftir hlaup(líkt og á mynd tekna á laugardeginum)!
Slúðrið segir að allt stefni í að Haukur, Sigrún og Valdi verði á farfuglaheimili í útjaðri Berlínar í haust meðan Lalla, Pétur, Lísa og fleiri verði með eigin íbúð í 200 metra fjarlægð frá rásmarki Berlínar-maraþons. Hvað svo rammt við að Haukur og Valdimar hafa afráðið að sá síðarnefndi fari utan (Evrópu) og kannar öll sín sambönd til að fá sem bestan náttstað í Berlín. Mun Valdimar verða frá æfingu sökum þessa næstu 2 vikur eða svo!
»
14.01.2012 23:58:44 / skokkhopurhamars
Jóhó, flottur laugardagsmorgun hjá okkur! Byrjuðum á að taka örlítin hlauparúnt með Frískum Flóamönnum um mishálar götur Hveragerðis og Ölfus. Brugðum við svo okkur í mjög snökt bað, svona bara til þess að ilma siðsamlega eftir hlaupið. Þá var komið að því að taka á móti fyrirlesurum okkar þeim Trausta, Dísu, Gutta og að ógleymdum 7 ára kvikmyndatökumanninum honum Ólaf Trausta sem var heldur betur að standa sig vel. Fræddu fyrirlesararnir okkur meðal annars um kosti þess að vera jákvæður í leik og starfi, um holt og gott matarræði ( þar hlustuðu sumir betur en aðrir) og gagnsemi upphitunar og teygjuæfinga. Fór svo Gutti með okkur yfir nokkrar góðar styrktar og teygjuæfingar. Mátti þá heyra brak og bresti í liðamótum hjá hinum og þessum hlauparanum. Að lokum bauð Lárus STÓRhlaupari uppá rjómalagaða Aspars súpu og Almar Bakari sem gaf sér tíma frá bókaskrifum (bókarinnar "Af hverju kemst ég ekki út að hlaupa") og færði okkur dýrindis brauð með súpunni. Ekki má gleyma henni Ástu okkar sem útvegaði okkur húsnæði og fór eins hvítur stormsveipur um salina. Takk fyrir okkur Pétur og Lísa Skvísa.
»
12.01.2012 13:50:58 / skokkhopurhamars
Jæja jæja þá er allt klárt fyrir laugardaginn, æfing kl 9:30. Hlaupum í ca 30 - 45 mín skellum okkur þá í stuttan pott og svo á fyrirlesturinn í Rauðakrosshúsinu kl 11:00. Létt spjall, súpa og brauð verða í boði eftir fyrirlesturinn.
Kveðja Pétur og Lísa skvísa.
»
10.01.2012 17:22:57 / skokkhopurhamars
Erum hér heima í sveitinni veðurtept í aftakaveðri ca 40 m/s ef ekki meira. Komumst því miður ekki á æfingu og eflaust þið ekki heldur. Gott væri nú samt að fá nokkrar línur frá ykkur til að sjá og heyra að þið eruð enn á lífi. Þetta getur til dæmis verið um að hverju þið stefnið eða stefnið ekki eða bara hvað sem er. Koma svo!!!!
Kveðja Pétur og Lísa skvísa.
»
08.01.2012 21:05:59 / skokkhopurhamars
Laugardaginn 14 janúar kl 10:00 munum við fá fyrirlesara til okkar. Eru þetta þau Trausti Valdimarsson Læknir, Herdís M Guðjónsdóttir Matvælafræðingur og Guðjón Karl Traustason Sjúkraþjálfari og verða þau með eftirfarandi efni til umfjöllunar.
Trausti Valdimarsson: Hugarfar til að ná árangri. Hvað/hvert/hvernig? . Gigtarlyf.
Guðjón Karl Traustason: Almennar reglur varðandi þjálfun. Ofþjálfun og meiðsli.
Herdís M Guðjónsdóttir: Duft eða matur ?
Kveðja Pétur og Lísa skvísa.
»
07.01.2012 09:00:14 / skokkhopurhamars
Gleiðlegt ár allir! Fann mig knúinn til að breyta bleika litnum sem "Móri" setti inn. Sá einnig að það var kominn tími á myndina góðu /efst á síðunni) af hópnum sem einu sinni var að hlaupa og ganga en eitthvað hefur breyst hópurinn sl. 2 ár!
Set fyrir foringjann
link hér á Albatros Travel í Danmörku en þeir eru með miða í Berlínarmaraþonið ef einhverjir eru með áhuga ... og fullt af öðrum maraþon-ferðum!
RunRun AT.
»
02.01.2012 01:27:31 / skokkhopurhamars
Gleðilegt nýtt hlaupa/gönguár kæru félagar og takk fyrir eftirmynnilegt ár. Setti inn nokkrar nýjar myndir og á eftir að bæta fleirri myndum við.
Kveðja Lísa skvísa og Pétur.
»
27.12.2011 23:06:36 / skokkhopurhamars
Mynnum á frábæru Draugaferðina sem er í boði Frískra Flóamanna. Mæting við sundlaugina kl 17:30 og raðað í bíla.
Kveðja Pétur og Lísa skvísa.
E,S. Hef sterkan grun um að ég (Pétur) eigi betri tíma en Móri í 10km!
»
23.12.2011 14:50:14 / skokkhopurhamars
Aðfangadagur Jóla er fjölskyldudagur hjá okkur og því um að gera að kvetja alla fjölskyldumeðlimi stóra og smáa til að mæta á jólaæfinguna. Eins og undanfarin jól verður þetta létt æfing, við allra hæfi og auðvitað verður eitthvað sprellað að vanda. Mætum sem flesst með jólasveinahúfurnar okkar. Kveðja Pétur og Lísa skvísa.
»
20.12.2011 23:35:41 / skokkhopurhamars
Athugið eftirfarandi að Draugaferðinn er ekki fyrr en fimmtudaginn 29 desember, milli jóla og nýárs. Endilega takið frá þennan dag, þið verðið ekki svikin um skemmtilegan draugarúnt með honum Þóri Vigfússyni.
Kveðja Lísa skvísa og Pétur.
»
17.12.2011 19:09:24 / skokkhopurhamars
Desember er búin að vera skemmtilegur hlaupa/göngu mánuður hjá okkur Hamars-mönnum og endalausar uppákomur. Ida og litla fjölskyldan hennar buðu okkur heim í Julefrokost að dönskum sið. Alltaf fjölgar gestum til þeirra og þurfi Mundi að lengja borðið enn meir þetta árið. Síðasta þriðjudag var svo súkkulaðihlaupið okkar. Hlupu skokkararnir afar sérkennilega í halarófu smá krók en hittu svo gönguhópinn við gamla hótelið og urðu þar fagnaðarfundir. Þá var haldið inn í lystigarð þar sem heitt súkkulaði, smákökur og kertaljós beið okkar og sungin var jólasöngur áður en haldið var aftur af stað......................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................Og gleðin heldur áfram, á þriðjudaginn eiga allir að mæta með jólasveinahúfur. Endilega mynnið hvort annað á húfurnar!!!! Síðan er það fimmtudagurinn ógurlegi VAR MÓRI HLAUPARI???
Draugar, álfar, huldufólk, tröll og ýmsir vættir og kynjaverur geta verið á kreiki í kringum áramótin.
Af því tilefni vilja Frískir Flóamenn bjóða okkur Hamarsmönnum upp á draugahlaup á Móraslóðir með Þóri Vigfússyni í broddi fylkingar. Farið verður með langferðabifreið frá sundlauginni á Selfossi fimmtudaginn 29 desember kl. 18:30 og stoppað hér og það á leiðinni, skokkað smá, skyggnst eftir Mórum og Skottum og eflaust lumar Þór á einhverjum mergjuðum sögum. Síðasta stopp er á Kríukránni þar sem verður hægt að kaupa sér eitthvað hjartastyrkjandi eftir allan draugaganginn. Áætluð tímalengd er ca 2 tímar og ekki er gert ráð fyrir löngum hlaupum á leiðinni svo þetta verður við allra hæfi. Þeir sem ætla að vera með ættu að láta Pétur vita annað hvort á æfingu eða í síma 8446617. Bestu kveðjur Lísa skvísa og Pétur.
»
08.12.2011 14:28:01 / skokkhopurhamars
Þá er skipulagninginn alveg á fúlsvingi hjá Pétri og eins fallegt að skoða æfigaplanið til að koma sem mestu í verk fyrir jól og missi ekka af æfingum, því að eins og við vitum getur alltaf eitthvað óvænt átt sér stað svona rétt fyrir jólinn.
En hér kemur svo planið
10. Des, Fjallgangan. Mæting er við Gljúfurbústaði (á móts við Nátthaga) klukkan 10:00. Við ætlum að ganga á Bjarnarfell sem er 380m hátt (ef ég man rétt) en við byrjum í 80m svo gönguhækkun er um 300m. Vegalengdin er 6-7 km og áætlaður göngutími er 2-3 klst. Eftir göngu og snöggt bað hittumst við svo hjá Idu og Munda í Ásnesi.
Kv. Sverrir
13. Des er skyldumæting þar sem ræða á um síðustu æfingu og þá næstu.
15. Des, A.T.H. Það er skyldumæting á þessa æfingu. Tónleikar eru í Hveragerðiskirkju og verður þetta því stutt æfing fyrir þá sem ætla á tónleikana, aðrir geta tekið fulla æfingu.
17. Des 10-14 km.
20. Des, gaman gaman, jólasveinahúfuæfing.
22.Des, létt æfing.
24. Des, Aðfagadagsmorgun er fjölskylduæfingin hjá okkur hlaupa og gönguhópnum. Kvetjum við félaga því að koma með alla fjölskylduna með sér þar sem létt æfing verður tekin og rýmkað til fyrir jólasteikinni.
26. Des, annar í jólum. Létt æfing.
29. Des, létt og ofsa gaman.
»
06.12.2011 22:28:53 / skokkhopurhamars
Julefrokost á "ásnesku" lau. 10. des.! Ég er að baka rúgbrauð og mun gera kæfu. Elín Jó kemur með síldarsalat. Hver og einn kemur með eitthvað að drekka - ég á 3 mismunandi flöskur af sterkasta gerð, sem ég myndi vilja bjóða upp á. Eigum við líka að vera með ost og eitthvað sæt?! Og hver vill koma með það?
»
Síður:
1 2 3 ...
23